Möguleikar MyWork

Heildræn nálgun á verkefna- og tímaskráningar


Betri yfirsýn, jafnara vinnuálag og meiri afköst

MyWork hjálpar þér að veita góða þjónustu

Greining á vinnuálagi

Sjáðu hvernig vinnustundir dreifast á meðal starfsmanna og eftir tímabilum. Hvenær koma hápunktar vegna verkefna sem er hægt að sjá fyrir og komast hjá með betri skipulagningu. Berðu saman eðlislík verkefni milli viðskiptavina, frávik í tímum og hvernig hægt er að útdeila verkefnum meðal starfsmanna á réttan hátt.

Tekjustýring og áætlanir

Greindu hlutfall seldrar vinnu við heildarvinnustundir og hvar svigrúm eru til leiðréttinga á verðlagningu eða breytinga á þjónustunni. Fáðu skýra yfirsýn yfir þróun tekna yfir daga, mánuði og ár, eftir starfsmönnum, viðskiptavinum, gerð verkefna og flokkum þjónustu. Gerðu áætlanir um betri nýtingu og arðsemi sem byggja á skýrri og traustri sögu úr MyWork.

Gæði þjónustunnar

Hjálpaðu starfsmönnum að vita stöðuna, hafa frumkvæði í þjónustu og að minnka tilhneigingu til frestunar á verkefnum. Láttu MyWork auðvelda rétta forgangsröðun verkefna og tímanleg skil þeirra. MyWork veitir góða yfirsýn yfir alla nauðsynlega verkliði hjá viðskiptavinum og því er minni hætta á að verkefnum seinki ef einstaka starfsmenn forfallast.


MyWork keðjan

Viðskiptavinir

Viðskiptamenn eru aðaleiningin í MyWork eða „húsið“ utan um öll verkefnin.
MyWork getur tengst þínum gagnagrunnum séu þeir til staðar, en í MyWork getur þú hópað saman viðskiptavinum eftir gerð þeirra, tengdum aðilum og stöðu þeirra. Hægt er að merkja annan viðskiptavin sem greiðenda því oft tilheyra margir aðilar einni heild. Í MyWork getur þú líka haldið utan um allar nauðsynlegar upplýsingar, aðganga og tengiliði til að tryggja skilvirka vinnu án óþarfa tafa og gagnaleitar. Allar upplýsingar, aðgangar, verkefni og vinna tengd viðskiptavini birtist í spjaldaglugga sem er aðgengilegur hvar sem notandinn er staddur í kerfinu.

Verkefni

Verkefnin eru ávallt tengd ákveðnum viðskiptavini, merkt ábyrgðarmanni og næsta verkdegi.
Verkin eru skráð með flokki verkefnisins og eðli þjónustunnar auk þess að vera merkt starfsmanni sem tryggir afgreiðslu verksins og að það týnist hvorki né gleymist. Hvert verkefni er ávallt skráð með "Næsta verkdag" fyrir nauðsynlegt flæði á vinnu og til að tryggja skipulag og yfirsýn yfir vinnuna framundan. Hægt er að breyta heitum á flokkum verkefna og stilla gerðir á þjónustu svo kerfið passi þinni starfsemi. MyWork er þróað útfrá starfsemi aðila sem selja þjónustu á borð við endurskoðendur, bókara, lögmenn, verkfræðinga, ráðgjafa, hugbúnaðarhús, auglýsingastofur o.fl.

Tímabókhald

Tímar eru ávallt skráðir á verkefni en ekki beint á viðskiptamann.
Þannig kemst á ferill með öruggri keðju sem MyWork heldur um. Vönduð tímaskráning er nauðsynlegur þáttur í rekstri alvöru þjónustuveitenda þar sem söluafurðin er tími og vinna þekkingarstarfsmanna. Án tímaskráningar sérfræðinga, er erfitt að sjá hvar möguleikar eru til vaxtar og hagræðingar í rekstri. Með MyWork eru þessi atriði á hreinu og gæði upplýsinga tryggð með fyrrnefndri keðju sem einnig minnkar villuhættu eða tap á unnum tímum. Uppgjör og leiðréttingar á tímum er leikur einn og greiningar fullkomnar! MyWork getur beintengst þínu reikningakerfi.


Kynntu þér möguleika MyWork

Hafðu samband og byrjum
spennandi tíma með þér!

MyWork er þróað og smíðað af EQ Tech
Grensásvegi 50, 108 Reykjavík

Síminn er 790-8090 og tölvupóstur er mywork@mywork.is.