Nýttu þinn tíma í að selja þekkingu!
Með MyWork eru öll verkefni á hreinu, vinnan skilvirkari og álag jafnara.
Full yfirsýn yfir verkefni og auðveld tímaskráning sparar þér dýrmæta vinnu.
Skilvirkir ferlar
Öll verkefni eru með ábyrgðaraðila og verkdag. Þannig er tryggt að öllum verkefnum sé sinnt á réttum tíma. Auðvelt er að sjá dreifingu verkefna og áætla vinnu starfsmanna.
Greiningar
Hægt er að greina tímanýtingu og tekjur frá öllum sjónarhornum. Eftir verkefnum, tímabilum, starfsmönnum, viðskiptavinum, greiðendum og öllum öðrum hliðum.
Létt og sveigjanlegt
MyWork er vefforrit sem virkar líka á öllum snjalltækjum. Kerfið er létt og krefst ekki uppsetningar hjá notendum. Hægt er að hýsa og tengja MyWork við önnur innanhúskerfi.
Öryggi og samræmi
Tvöföld innskráning, full notkunarsaga kerfis og góð yfirsýn yfir öryggi og gögn. Öll samskipti eru dulkóðuð og sérstaklega er hugað að meðhöndlun persónuupplýsinga.

Virkni og möguleikar MyWork
Einfalt en stækkanlegt eftir þínum þörfum. MyWork leysir mörg algeng vandamál í vinnuferlum og skipulagi hjá aðilum sem selja þekkingu og þjónustu.

Uppsetning og tengingar
MyWork byggir á .NET umhverfi Microsoft og virkar því vel með öðrum þekktum lausnum og kerfum frá Microsoft. Kerfið er einfalt í uppsetningu og aðlögun.